16. september 12:00-13:00

INNBLÁSTURSERINDI Í MESSANUM

Hver á hugmyndina þína? Og hvað geturðu gert til að verja hana?

Ingólfur Pálsson, European Patent Attorney og sérfræðingur í einkaleyfum og hugverkarétti, heldur erindi í Messanum hjá Drift EA og fer yfir það helsta sem frumkvöðlar og fyrirtæki þurfa að hafa í huga þegar kemur að því að verja nýjar hugmyndir, tæknilegar lausnir, vörumerki og önnur hugverkaréttindi.

Ingólfur hefur um 20 ára reynslu af ráðgjöf á sviði hugverkaréttar og hefur starfað með fjölbreyttum fyrirtækjum, allt frá sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum til fyrirtækja með starfsemi og markaði víða um heim. Í starfi sínu hefur hann meðal annars aðstoðað fyrirtæki við að greina hvað sé hægt að verja, móta einkaleyfa- og hugverkaréttaráætlanir og tryggja að verðmætar hugmyndir glatist ekki vegna þess að of seint sé gripið til aðgerða.

🔐 Hvað er hægt að verja?

💡 Hvenær er skynsamlegt að sækja um einkaleyfi?

™️ Hvað með vörumerki og annan hugverkarétt?

🚀 Hvaða mistök er mikilvægt að forðast?

Erindið verður á léttu og aðgengilegu nótunum og hugsað fyrir þá sem vilja öðlast betri tilfinningu fyrir því hvenær hugverkaréttur skiptir máli – og hvað er gott að hafa í huga áður en hugmynd eða lausn er kynnt fyrir öðrum.

Komdu með hádegismatinn, nældu þér í fróðleik og fáðu betri tilfinningu fyrir því hvernig þú getur verndað það sem þú ert að skapa.

Að erindinu loknu verður Ingólfur áfram hjá Drift EA í nokkra klukkutíma. Þeir sem hafa áhuga á að ræða nánar sínar eigin hugmyndir, verkefni eða spurningar tengdar einkaleyfum og hugverkarétti geta því fengið tækifæri til að hitta hann og eiga óformlegt samtal.

📍 Messinn, Drift EA

📅 16. september

⏰ 12:00–13:00

Hugverkaréttur og einkaleyfi - Innblásturserindi
16. september

/

12:00-13:00

Vantar stað fyrir viðburð?

Nýsköpun og Samvinna í Hjarta Akureyrar. Kynntu þér okkar hlýlega samvinnurými, þar sem skapandi hugmyndir og nýsköpun blómstra í samfélagi framúrskarandi hæfileika.